|
Arnþór Jónsson hóf ungur tónlistarnám og lærði bæði á selló og píanó. Hann lauk námi frá Royal Northern College of Music og var eftir það fastráðinn sem sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Arnþór starfar nú sem kennari við Tónlistarskóla Kópavogs og Söngskólann í Reykjavík. |
|
Guðmundur Kristmundsson lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og framhaldsnámi frá Brabants Conservatorium í Tilburg. Hann var um árabil félagi í SÍ og hefur leikið einleik með hljómsveitinni, ásamt því að taka þátt í ýmsum kammerhópum s.s. Caput, Ethos kvartett og Cammerarctica. |
|
Helga Þórarinsdóttir |
|
Kristján Matthíasson, fiðluleikari lauk kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og burtfararprófi frá Brabants Conservatorium í Tilburg í Hollandi. Kristján leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir við Tónskóla Sigursveins D.Kristinssonar. |
|
Martin Frewer nam stærðfræði við Oxford University og fiðluleik við Guildhall School of Music and Drama. Árið 1983 fékk hann stöðu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur starfað þar síðan. Hann hefur starfað með ýmsum tónlistarhópum. Martin spilar á fiðlu smíðaða af Christophe Landon. |
Sardas Kvartettinn
